Til baka
Fjárfestar
9 mars 2026
Ívera bætir við sig íbúðum á Selfossi

Ívera hefur gengið frá samkomulagi við OS Eignir ehf. um kaup á íbúðarhúsi við Eyraveg 28-30. Íbúðirnar eru 53 talsins, sem bætast við 78 íbúðir í núverandi eignasafni félagsins á á Selfossi.
Sveitarfélagið Árborg hefur stækkað ört síðustu ár og þörf fyrir hagkvæmar íbúðir til langtímaleigu fer vaxandi á svæðinu. Ívera hefur skilgreint Selfoss ásamt nærliggjandi sveitarfélögum sem eitt af vaxtarsvæðum félagsins og þessi viðskipti styrkja enn frekar rekstur Íveru á svæðinu.
Íbúðirnar eru 61 m² að meðalstærð og munu henta vel fyrir einstaklinga og minni fjölskyldur.
Íbúðirnar verða auglýstar til leigu á vormánuðum 2026.