Til baka
Fjárfestar
9 mars 2026
Ívera bætir við sig íbúðum á Þorlákshöfn

Ívera hefur undirritað samkomulag við Hamrakór ehf. um kaup á 2 íbúðarhúsum í Móabyggð. Húsin rísa við Klettamóa og Rásamóa. Hverfið Móabyggð rís hratt og með þessum íbúðum mun Ívera eiga um 40 íbúðir í Þorlákshöfn.
Mikil atvinnuuppbygging hefur átt sér stað í Sveitarfélaginu Ölfus og þörf fyrir íbúðahúsnæði fer sífellt vaxandi. Ívera hefur skilgreint Þorlákshöfn sem eitt af kjarnasvæðum félagsins og þessi viðskipti styrkja rekstur Íveru á svæðinu.
Um er að ræða fjölbreyttar íbúðir 78 m² að meðalstærð sem henta vel fyrir fjölskyldur og einstaklinga.
Stefnt er á að Klettamói fari í auglýsingu vorið 2026 og Rásamói í árslok 2026, eignirnar verða auglýstar til langtímaleigu.