Til baka
Fjárfestar
9 mars 2026
Ívera byggir á Borgarhöfða

Ívera hefur gengið frá kaupum á Hakabryggju ehf. sem heldur á lóð staðsettri við Þórðarhöfða. Ívera hefur þegar hafið hönnunarvinnu og undirbýr uppbygging á um 130 íbúðum á lóðinni.
Um er að ræða fyrstu eigin uppbyggingu félagsins, en stefnt er á að ganga frá samningum um yfirverktöku við verktakta á komandi mánuðum. Verkefnið býður uppá aukna möguleika fyrir Íveru til þess að hanna og besta verkefnið að þörfum framtíðar leigutaka félagsins, og tryggja að gæði og ending eignanna sé með besta móti.
Íbúðirnar verða fjölbreyttar með meðalstærð upp á um 75 m² og munu henta vel fyrir fjölskyldur af öllum stærðum. Bílakjallari á lóðinni mun innihalda um 1,1 stæði fyrir hverja íbúð og mun vera opin almenningi yfir daginn og þjónusta nærumhverfið.
Stefnt er á að hefja framkvæmdir 2026 og áætlað er að íbúðirnar verði frágengnar og auglýstar til langtímaleigu á seinni hluta 2028.