Til baka
Fjárfestar
9 mars 2026
Ívera festir kaup á íbúðum við Breiðhöfða

Ívera hefur undirritað samkomulag við Framkvæmdafélagið Höfða ehf. um kaup á tveimur íbúðarhúsum, samtals 77 íbúðir, við Breiðhöfða í nýju rísandi hverfi Borgarhöfða.
Íbúðirnar eru fjölbreyttar með meðalstærð upp á 75 m² og munu henta vel fyrir fjölskyldur og einstaklinga.
Stefnt er á að hefja framkvæmdir 2026 og áætlað er að íbúðirnar verði afhentar Íveru og auglýstar til langtímaleigu 2028.