Til baka
Óflokkað
20 maí 2025
Ívera kaupir nýjar eignir í Garðabæ

Ívera hefur gengið frá samkomulagi við Framkvæmdafélagið Eskiás um kaup á Eskiás 8 í Garðabæ. Ívera á nú þegar um 60 íbúðir í tveimur húsum í götunni, Eskiás 2 og 4. Með þessari viðbót er Ívera komin með 90 íbúða kjarna glæsilegra íbúða á besta stað í Garðabæ.
Eskiás 8 er um 2.600 birtir íbúðafermetrar með 29 íbúðum. Um er að ræða fjölbreyttar eignir sem henta vel fyrir fjölskyldur og einstaklinga.
Stefnt er á að eignirnar verði auglýstar til leigu í lok sumars.
Nánari upplýsingar veitir Egill Lúðvíksson, forstjóri Íveru, egill@ivera.is“