Eskiás 4C

Gardabae

Baðherbergi
Skoða myndir
  • Baðherbergi
  • Baðherbergi
  • Baðherbergi
  • Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Skoða myndir

Laus til leigu í Desember

Glæný og falleg fimm herbergja íbúð með aukinni lofthæð!

Velkomin inn í nýtt og vandað 102,5 fm heimili að Eskiás 4C, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi, gengið er inn í íbúðina á annarri hæð utanhúss og innan íbúðar upp á þriðju hæð. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin stofnbrautum.

Nánari lýsing

Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp, gengið er úr forstofu upp teppalagðan stiga upp á þriðju hæð. Komið er upp í opið alrými sem eldhús og stofa mynda. Gengið er út á svalir úr stofu sem snúa inn í sameigilegan inngarð hússins. Í eldhúsinu er mikið skápapláss með fallegri eyju upp við vegg.

Í íbúðinni eru fjögur svefnherbergi, baðhergið er með upphengdu salerni og sturtu, þar er einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hægt að nýta rými undir stiga sem geymslu.

Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.

Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp.

Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allir íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 405.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.

Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.

Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.

Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.

Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.

Upplýsingar

Laus:

5 Herbergi

4 Svefnherbergi

1 Badherbergi

102,5 Fermetrar

Íbúðanúmer:314

Ívera @ 2024 Allur réttur áskilinn