Skógarbraut 1113

Reykjanesbae

Stór og björt 3ja herbergja íbúð til leigu

Velkomin inn í vel skipulagt og rúmgott 105,8 fermetra heimili að Skógarbraut 1113, Ásbrú, Reykjanesbæ. Íbúðin hentar vel þeim sem vilja hafa nægilegt rými fyrir alla fjölskyldumeðlimi og búa nálægt allri helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi með baðkari, stórt eldhús og rúmgóð stofa með útgengi út á svalir. Í eigninni er geymsla/þvottarými.

Nánari lýsing:

Forstofa: Komið er inn í forstofuna á gang með stórum fataskáp.

Eldhús: Eldhúsið er rúmgott með góðu skúffu- og skápaplássi.

Stofa: Gengið er úr eldhúsinu fram í stofu, Stofan er stór og björt.

Baðherbergi: Baðherbergið er með baðkari og sturtu í baði. Dúkur á gólfi.

Þvottahús: Í íbúðinni er sér þvottarými.

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 189.000 kr á mánuði og er tengd vísitölu.

Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.

Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.

Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.

Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól. Vátrygging frá Sjóvá í stað tryggingar er einnig í boði fyrir þá sem uppfylla kröfur.

Kostir þess að leigja hjá Heimstaden

Heimstaden er eitt af leiðandi íbúðarleigufyrirtækjum í Evrópu með 150.000 heimili í tíu löndum. Við kaupum, þróum og stýrum íbúðum með það fyrir stafni að eiga þau til eilífðar og þannig veistu að heimilið þitt sé öruggt.

- Heimþjónusta - Þú færð sérhæfðan smið til að aðstoða þig við að koma þér fyrir.

- Öll þjónusta og viðhald er innifalin.

- Persónuleg og hröð þjónusta.

- Fagmannlegur langtímaeigandi - kynntu þér sígrænu fjárfestingastefnu okkar.

Upplýsingar

Laus:

3 Herbergi

2 Svefnherbergi

1 Badherbergi

105,8 Fermetrar

Íbúðanúmer:1-3C

Ívera @ 2024 Allur réttur áskilinn