Hlíðarfótur 11

Reykjavik

Stórglæsileg og nýleg íbúð til leigu á fjórðu hæð í lyftuhúsi að Hlíðarfæti 11, Hlíðarenda, Reykjavík. Íbúðin er 173,4 fm og er fimm herbergja. Íbúðin skiptist í anddyri, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og svalir. Íbúðin er parketlögð með fallegu harðparketi, vandaðar og fallegar innréttingar á eldhúsi og baðherbergi.

Gardínur fylgja íbúðinni. Allar frekari upplýsingar veitir starfsfólk Heimstaden í síma 517-3440 eða á heimstaden@heimastaden.is.

Nánari lýsing:

Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í rúmgott anddyri, þar er fataskápur.

Eldhús/sofa: Stórt og fallegt eldhús, með eyju. Opið og bjart og er samliggjandi stofunni. Tvær svalir, gengið er út á aðrar úr eldhúsinu og út á hinar úr stofunni.

Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi. Sturta og tengi fyrir þvottavél. Flísalagt með fallegum flísum.

Svefnherbergi: Rúmgóð og björt svefnherbergi, öll með fataskápum.

Þvottahús: Í íbúðinni er rúmgott þvottahús með vaski og borðplötu.

Geymsla: 8,4 fm geymsla í sameign hússins og bílastæði í bílakjallara

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 440.000 kr á mánuði og er tengd vísitölu.

Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.

Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.

Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.

Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.

Upplýsingar

Laus:

4 Herbergi

4 Svefnherbergi

1 Badherbergi

173.4 Fermetrar

Íbúðanúmer:410

Ívera @ 2026 Allur réttur áskilinn