Eskiás 4D

Garðabær / Garðabæ

Mynd 1
Skoða myndir
  • Baðherbergi
  • Baðherbergi
  • Baðherbergi
  • Baðherbergi
Mynd 1
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Skoða myndir

Glæsileg og nýleg vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með stóru alrými laus til leigu!

Velkomin inn í fallegt 101.3 fm heimili að Eskiás 4D, Garðabæ. Íbúðin er á jarðhæð með sérinngangi. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.

Nánari lýsing

Gengið er inn í forstofu með fataskáp, gengið er inn í 4fm geymslu úr forstofunni. Úr sorstofu er svo gengið inn í alrýmið, sem stofa og eldhús mynda. Í eldhúsinu er gott skápapláss og falleg eyja sem snýr út í borðstofurýmið. Úr stofurýminu er gengið út á verönd þar sem hægt er að njóta útiveru.

Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, fataskápar eru í öðru herbergjnu en 4,8 fm fataherbergi í hinu. Baðherbergi er með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.

Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp.

Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.

*Athugið að myndir eru af sambærilegri íbúð *

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 401.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.

Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.

Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.

Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.

Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.

Upplýsingar

Laus:

3 Herbergi

2 Svefnherbergi

1 Badherbergi

101,3 Fermetrar

Íbúðanúmer:101

Ívera @ 2024 Allur réttur áskilinn