Eskiás 2G
Garðabær / Garðabæ
Laus falleg fimm herbergja íbúð með aukinni lofthæð!
Velkomin inn í vandað 102,4 fm heimili að Eskiás 2, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi, gengið er inn í íbúðina á annarri hæð utanhúss og innan íbúðar upp á þriðju hæð. Eskiás er vel í staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin stofnbrautum.
Nánari lýsing
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp, gengið er úr forstofu upp teppalagðan stiga upp á þriðju hæð. Komið er upp í opið sameignilegt alrými, eldhús og stofu. Gengið er út á svalir úr stofu sem snúa inn sameigilegan garð hússins. Í eldhúsinu er mikið skápapláss með fallegri eyju upp við vegg.
Í íbúðinni eru fjögur svefnherbergi, baðherbergið er með upphengdu salerni og sturtu, þar er einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hægt að nýta rými undir stiga sem geymslu.
Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp.
Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.
*Athugið að myndir eru af sambærilegri íbúð, en spegluð*
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 444.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
5 Herbergi
4 Svefnherbergi
1 Badherbergi
102,4 Fermetrar
Íbúðanúmer:305