Eskiás 4E

Garðabær / Garðabæ

Baðherbergi
Skoða myndir
  • Baðherbergi
  • Baðherbergi
  • Baðherbergi
  • Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Skoða myndir

Glæsileg og glæný vel skipulögð 4ra herbergja íbúð með stóru alrými laus til leigu!

Velkomin inn í fallegt 112.4 fm heimili að Eskiás 4E, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi þar sem gengið er inn utanhúss upp á aðra hæð. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.

Nánari lýsing

Gengið er inn í forstofu með fataskáp, úr forstofunni er gengið upp stiga í rúmgott og fallegt rými, sem stofa og eldhús mynda. Í eldhúsinu er gott skápapláss og falleg eyja sem snýr út í borðstofurýmið. Úr stofurýminu er gengið út á svalir.

Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, fataskápar eru í tveimur herbergjum en fataherbergi í því þriðja. Baðherbergi er með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.

Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp.

Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.

*Athugið að myndir eru af sambærilegri íbúð, húsgögn fylgja ekki íbúð*

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 430.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.

Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.

Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.

Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.

Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.

Upplýsingar

Laus:

4 Herbergi

3 Svefnherbergi

1 Badherbergi

112,4 Fermetrar

Íbúðanúmer:304

Ívera @ 2026 Allur réttur áskilinn