Eskiás 4G
Garðabær / Garðabæ
Glæsileg og glæný vel skipulögð 4ra herbergja íbúð með stóru alrými laus til leigu í miðjan október!
Velkomin inn í fallegt 113.9 fm heimili að Eskiás 4, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi þar sem gengið er inn utanhúss upp á aðra hæð. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.
Nánari lýsing
Gengið er inn í forstofu með fataskáp, úr forstofunni er gengið upp stiga í rúmgott og fallegt rými, sem stofa og eldhús mynda. Í eldhúsinu er gott skápapláss og falleg eyja sem snýr út í borðstofurýmið. Úr stofurýminu er gengið út á svalir.
Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, fataskápar eru í tveimur herbergjum en fataherbergi í því þriðja. Baðherbergi er með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.
Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp.
Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.
*Athugið að myndir eru af sambærilegri íbúð, húsgögn fylgja ekki íbúð*
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 435.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
4 Herbergi
3 Svefnherbergi
1 Badherbergi
113,9 Fermetrar
Íbúðanúmer:308