Eskiás 2A
Garðabær / Garðabæ
Laus nýleg falleg fimm herbergja íbúð með aukinni lofthæð!
Velkomin inn í vandað 122,2 fm heimili að Eskiás 2A, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi, gengið er inn á annarri hæð utanhúss og innan íbúðar upp á þriðju hæð. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.
Nánari lýsing
Gengið er inn í íbúðina í rúmgóða forstofu með fataskáp, gengið er úr forstofu upp teppalagðan stiga upp á þriðju hæð. Komið er upp í opið og skemmtilegt rými þar sem eldhús og stofa eru í sameiginilegu alrými. Gengið er út á svalir úr stofu sem snúa í suður. Í eldhúsinu er mikið skápapláss og falleg eyja upp við vegg. Þrír stórir gluggar eru í eldhúsinu sem hleypa fallegri birtu inn í eignina.
Í íbúðinni eru fjögur svefnherbergi, baðhergið er með upphengdu salerni og sturtu, þar er einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Sér 4,4 fm geymsla er innan íbúðar en einnig er hægt að nýta rými undir stiga sem geymslurými.
Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.
Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp.
Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allir íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.
*Athugið að myndir eru af sambærilegri íbúð, en spegluð*
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 429.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
5 Herbergi
4 Svefnherbergi
1 Badherbergi
122,2 Fermetrar
Íbúðanúmer:310