Eskiás 8B

Garðabær / Garðabæ

Mynd 1
Skoða myndir
  • Herbergi
  • Herbergi
  • Herbergi
  • Herbergi
Mynd 1
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Skoða myndir

Laus til leigu, glæný og glæsileg þriggja herbergja íbúð!

Velkomin inn í vel skipulagt 63,6 fm heimili að Eskiás 8B, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi þar sem gengið er inn utanhúss upp á aðra hæð. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.

Nánari lýsing

Gengið er beint inn í forstofu með fataskáp. Stofa og eldhús eru í vel skipulögðu og opnu alrými þar sem er útgengt út á svalir sem býður upp á notalegt útivistarrými. Í eigninni eru tvö svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergið er rúmgott með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Innan íbúðar er geymsla. Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.

Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og hleðslukerfi fyrir rafbíla er á svæðinu.

Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 369.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.

Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.

Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakarvottorði.

Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.

Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.

Hér er hlekkur á 3D sýningu af íbúðinni:

Upplýsingar

Laus:

3 Herbergi

2 Svefnherbergi

1 Badherbergi

63,6 Fermetrar

Íbúðanúmer:208

Ívera @ 2026 Allur réttur áskilinn