Eskiás 8B

Garðabær / Garðabæ

Mynd 1
Skoða myndir
  • Stofa
  • Herbergi
  • Herbergi
  • Stofa
Mynd 1
Stofa
Herbergi
Herbergi
Stofa
Baðherbergi
Stofa
Baðherbergi
Herbergi
Skoða myndir

Laus til leigu, glæný og glæsileg þriggja herbergja íbúð!

Vel staðsett og fallegt 73,6 fm heimili að Eskiás 8B, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi þar sem gengið er inn beint af jarðhæð. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.

Nánari lýsing

Gengið er inn í forstofu með fataskáp og innan forstofu er geymsla. Úr forstofu er gengið inn í bjart alrými, þar sem stofa og eldhús eru eitt opið rými. Í eldhúsinu eru stílhreinar innréttingar og með íbúðinni fylgja bæði ísskápur og frystihólf. Úr stofurými er hægt er að ganga út í sameiginlegan inngarð hússins þar sem hægt er að njóta útiveru. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með fataskápum. Baðherbergi er rúmgott með sturtu, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Íbúðin er með gardínum í öllum gluggum sem skapar hlýlegt yfirbragð.

Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp.

Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 370.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.

Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.

Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakarvottorði.

Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.

Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.

3D linkur á íbúðina:

Upplýsingar

Laus:

3 Herbergi

2 Svefnherbergi

1 Badherbergi

73,6 Fermetrar

Íbúðanúmer:108

Ívera @ 2026 Allur réttur áskilinn