Eskiás 8A
Garðabær / Garðabæ
Laus til leigu, glæný og glæsileg fjögurra herbergja íbúð!
Velkomin inn í vel skipulagt 80 fm heimili að Eskiás 4D, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi þar sem gengið er inn utanhúss upp á aðra hæð. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.
Nánari lýsing
Gengið er beint inn í forstofu með fataskáp. Úr forstofunni er gengið inn opið rými , stofu og eldhús sem mynda eitt opið rými með útgengt út á svalir úr alrýminu. Í eigninni eru þrjú svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergið með rúmgott með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Innan íbúðar er geymsla.
Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.
Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.
Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp.
Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 380.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakarvottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
4 Herbergi
3 Svefnherbergi
1 Badherbergi
80 Fermetrar
Íbúðanúmer:206