Eskiás 8E
Garðabær / Garðabæ
Laus til leigu, glæný og glæsileg þriggja herbergja íbúð!
Vel staðsett og fallegt 81,3 fm heimili að Eskiás 8E, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi þar sem gengið er inn beint af jarðhæð. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.
Nánari lýsing
Gengið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp, innan forstofu er geymsla. Úr forstofu er gengið inn í rúmgott alrými, þar sem stofa og eldhús er eitt opið rými. Í eldhúsinu er falleg eyja og þrír stórir gluggar sem hleypa mikilli birtu inn í rýmið. Úr stofurými er hægt er að ganga út í sameiginlegan inngarð hússins þar sem hægt er að njóta útiveru. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með fataskápum. Baðherbergi er rúmgott með sturtu, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.
Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp.
Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 375.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakarvottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Hér er 3D hlekkur á íbúðina! :
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
81,3 Fermetrar
Íbúðanúmer:105