Eskiás 2C
Garðabær / Garðabæ
Glæsileg 4ra herbergja íbúð í Eskiás 2 í Garðabæ laus til leigu!
Fallegt og vandað 91,9 fm heimili að Eskiás 2, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi þar sem gengið er inn beint af jarðhæð. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.
Nánari lýsing
Í eigninni er rúmgóð forstofa með fataskáp, innan forstofunnar er 3,6 fm geymsla. Rúmgott alrými er í eigninni þar sem stofa og eldhús er eitt opið rými. Í eldhúsinu er falleg eyja upp við vegg. Úr stofu er gengið út á sér verönd sem snýr inn í sameiginlegan inngarð hússins.
Þrjú svefnherbergi með fataskápum eru í íbúðinni og fallegt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.
Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp.
Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.
*Myndir eru af sambærilegri íbúð.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 398.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
4 Herbergi
3 Svefnherbergi
1 Badherbergi
91.9 Fermetrar
Íbúðanúmer:114