Eskiás 4D
Garðabær / Garðabæ
Laus til leigu í júlí, ný og glæsileg 3ja herbergja íbúð!
Velkomin inn í nýtt og vandað 91,4fm heimili að Eskiás 4D, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi, gengið er inn á annarri hæð utanhúss. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.
Nánari lýsing
Gengið er inn í íbúðina í rúmgóða forstofu með fataskáp, þaðan er komið inn í opið og skemmtilegt rými þar sem eldhús og stofa mynda sameignilegt alrými. Gengið er út á svalir úr stofu. Eldhúsið er með miklu skápaplássi og fallegri eyju.
Í íbúðinni eru tvö rúmgóð svefnherbergi, baðhergið er með upphengdu salerni og sturtu, þar er einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Sér 3,7 fm geymsla er innan íbúðar.
Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.
Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp.
Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allir íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.
Myndir eru af sambærilegri íbúð.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 376.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
91,4 Fermetrar
Íbúðanúmer:201