Eskiás 4E
Garðabær / Garðabæ
Laus til leigu glæsileg 3ja herbergja íbúð!
Velkomin inn í nýlegt og vandað 91 fm heimili að Eskiás 4, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi, gengið er inn á annarri hæð utanhúss og innan íbúðar upp á þriðju hæð. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.
Nánari lýsing
Gengið er inn í íbúðina í rúmgóða forstofu með fataskáp, gengið er úr forstofu upp teppalagðan stiga upp á þriðju hæð. Komið er upp í opið og skemmtilegt rými þar sem eldhús og stofa mynda sameignilegt alrými. Gengið er út á svalir úr stofu sem snúa inn í sameiginlegan inngarð hússins. Eldhúsið er með miklu skápaplássi og fallegri eyju upp við vegg.
Í íbúðinni eru tvö rúmgóð svefnherbergi, baðhergið er með upphengdu salerni og sturtu, þar er einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Sér 3,7 fm geymsla er innan íbúðar en einnig er hægt að nýta rými undir stiga sem geymslurými.
Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.
Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp.
Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allir íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 379.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
91 Fermetrar
Íbúðanúmer:303