Eskiás 2B
Garðabær / Garðabæ
Einstaklega björt og falleg þriggja herbergja íbúð laus til leigu
Velkomin inn í vel skipulagt 93,9 fm heimili að Eskiás 2, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi þar sem gengið er inn utanhúss upp á aðra hæð. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.
Nánari lýsing
Gengið er inn í íbúðina í forstofu með fataskáp. Úr forstofunni er gengið inn í eldhúsið sem er bjart og fallegt með eyju. Stofa og eldhús mynda eitt opið rými og útgengt úr út á svalir úr alrýminu, svalir snúa í suður. Í eigninni eru tvö svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergið með rúmgott með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Innan íbúðar er 4,1 fm geymsla.
Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.
Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp.
Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 382.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Hér er hlekkur á 3 D sýningu af íbúðinni:
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
93,9 Fermetrar
Íbúðanúmer:212