Einivellir 1
hafnarfirdi
Laus til leigu í júlí 61,9fm tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð að Einivöllum 1, í Hafnarfirði.
Gengið er inn í íbúðina í rúmgott andyrri með stórum og rúmgóðum skáp, baðherbergi er með rúmgóðri skúffueiningu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhús og stofa eru samliggjandi, útgengt á stórar svalir sem eru með fallegu útsýni.
Vallarhverfið í Hafnarfirði er skemmtilegt hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu. Allar nánari upplýsingar veita starfsfólk Íveru í síma 517-3440 eða á ivera@ivera.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í forstofuna á gang og er þar rúmgóður fataskápur.
Eldhús/stofa: Eldhúsið og stofa eru samliggjandi, út frá stofu er hægt að ganga út á stórar svalir.
Baðherbergi: baðherbergið er flísalagt og er með sturtu. Upphengt klósett og gott skápapláss. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi. Í kjallara hússins er 5 fm geymsla sem fylgir íbúð.
Leiguverð: 303.000 kr á mánuði fyrir utan rafmagn (leiguverð er tengt neysluvísitölu og endurskoðast mánaðarlega)
Gæludýr eru ekki leyfð í húsinu
Upplýsingar
2 Herbergi
1 Svefnherbergi
1 Badherbergi
61,9 Fermetrar
Íbúðanúmer:103