Einivellir 1

hafnarfirdi

Mynd 1
Skoða myndir
  • Baðherbergi
  • Baðherbergi
  • Baðherbergi
  • Baðherbergi
Mynd 1
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Skoða myndir

Einstök 3ja herbergja íbúð laus til leigu í lok október!

Velkomin í stílhreint 77,3 fermetra heimili á fyrstu hæð við Einivelli 1 á Völlunum í Hafnarfirði. Íbúðin losnar í lok október.

Eldhús og stofa mynda eitt stórt fjölskyldurými og þaðan er gengið út á svalir. Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum, og baðherbergið er stórt með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Þetta er heimili fyrir þig sem vilt búa í rólegu og barnvænu hverfi, nálægt leik- og grunnskóla og helstu samgöngum. Gæludýr eru leyfð, svo öll fjölskyldan getur flutt með.

ATH: íbúðin er leigð út án húsgagna.

Nánari lýsing

Forstofa: Rúmgóð forstofa með fatahengi.

Eldhús og stofa: Samliggjandi rými. Úr stofu er gengið út á svalir.

Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum.

Baðherbergi: Stórt, með sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.

Geymsla: 6 fm geymsla innan íbúðar.

Velkomin heim!

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 370.000 kr. á mánuði og er tengt vísitölu.

Hiti og rekstur sameignar eru innifalin í leiguverði.

Leigutaki greiðir fyrir rafmagn samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.

Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.

Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.

Upplýsingar

Laus:

3 Herbergi

2 Svefnherbergi

1 Badherbergi

77,3 Fermetrar

Íbúðanúmer:105

Ívera @ 2026 Allur réttur áskilinn