Einivellir 1
hafnarfirdi
Laus til leigu í október glæsileg þriggja herbergja íbúð á frábærum stað!
Velkomin inn í vel skipulagt 77,3 fm heimili að Einivöllum 1, Hafnarfirði. Íbúðin er á fyrstu hæð með sérverönd.
Vellirnir er frábært hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla.
Velkomin heim!
Eignin
Gengið er inn í íbúðina í rúmgóða forstofu og alrými. Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi með fataskápum. Stórt baðherbergi er í eigninni með upphengdu salerni og sturtu. Inn á baðherberginu er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Fallegt eldhús með góðu skápaplássi og opið er í stofuna. Gengið er úr stofu út á fallega verönd.
Sér 6,8 fm geymsla er í sameign.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 325.000 kr á mánuði og er tengd vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Frekari upplýsingar
Hafir þú frekari spurningar er þér velkomið að heyra í okkur í síma 517-3440, eða með tölvupósti í ivera@ivera.is
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
77,3 Fermetrar
Íbúðanúmer:102