Einivellir 5
hafnarfirdi
Frábær 3ja herbergja íbúð í lyftuhúsi laus til leigu!
Stílhreint og fallegt 80 fm heimili að Einivöllum 5, í Vallarhverfinu, Hafnarfirði.
Íbúðin hentar þeim einstaklega vel sem líkar að búa í barnvænu umhverfi í nálægð við leik,- og grunnskóla ásamt allri helstu þjónustu. Íbúðin er nálægt góðum almenningssamgöngum og matvöruverslunum.
Á þessu heimili eru tvö svefnherbergi, baðherbergi með baðkari, þvottahúsi inn af baðherberginu, fallegt eldhús sem er samliggjandi stofu. Útgengt úr stofu út á rúmgóðar svalir til suðurs með stórglæsilegu útsýni. Geymsla í sameign fylgir einnig með.
Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Íveru í síma 517-3440 eða á ivera@ivera.is.
Leiguverð er 360.000 á mánuði. Innifalið í leiguverði er hiti og þrif á sameign ásamt stæði í bílakjallara.
*Ath - Húsögn fylgja ekki með*
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
80 Fermetrar
Íbúðanúmer:302