Einivellir 5
hafnarfirdi
Frábær þriggja herbergja vel skipulögð íbúð laus strax!
Velkomin inn í sjarmerandi og vel skipulagt 80 fm heimili að Einivöllum 5 í Vallarhverfinu, Hafnarfirði.
Íbúðin hentar þeim einstaklega vel sem líkar að búa í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi, nálægt allri helstu þjónustu ásamt leik,- og grunnskólum.
Í þessari íbúð eru tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum, baðherbergi með baðkari og þvottahúsi inn af baðherberginu, nýuppgert eldhús samliggjandi stofu þar sem útgengt er út á svalir til suðurs. Einnig fylgir geymsla í sameign.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 360.000 kr á mánuði og er tengd vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
80 Fermetrar
Íbúðanúmer:303