Austurkór 63
Kópavogsbær / Kópavogi
Laus til leigu í mars glæsileg og falleg fjögurra herbergja, 101,2 fm íbúð í lyftuhúsi að Austurkór 63, Kórahverfinu, Kópavogi. Íbúðin er á þriðju hæð og skiptist í forstofu, eldhús og stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Allar frekari upplýsingar veitir starfsfólk Íveru í síma 517-3440 eða á ivera@ivera.is
Nánari lýsing:
Eldhús/stofa: Eldhús og stofa er samliggjandi, opið rými. Í eldhúsinu er falleg innrétting og gott skápapláss. Útgengt er úr stofunni út á svalir með frábæru útsýni.
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, öll með fataskápum.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með miklu skápaplássi og baðkari.
Þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi er innaf baðherbergi, er það með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vaski.
Geymsla: Sér 10,7 fm geymsla í sameign.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 392.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Allar frekari upplýsingar veitir starfsfólk Íveru s. 517-3440 eða ivera@ivera.is
Upplýsingar
4 Herbergi
3 Svefnherbergi
1 Badherbergi
101,2 Fermetrar
Íbúðanúmer:302