Vefarastræti 1-5
mosfellsbae
Björt og rúmgóð 4ra herbergja íbúð til leigu í Helgafellslandi – Mosfellsbæ
Til leigu er björt og falleg 112,1 fm 4ra herbergja íbúð á jarðhæð við Vefarastræti 1-5 í Helgafellslandi í Mosfellsbæ.
Íbúðin skiptist í forstofu, opið eldhús og stofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi. Einnig fylgir geymsla í sameign og stæði í bílakjallara.
Íbúðin er vel staðsett með stutt er í skóla og leikskóla sem gerir hana mjög hentuga fyrir fjölskyldur.
Nánari lýsing
Forstofa
Rúmgóð forstofa með góðum fataskáp.
Eldhús og stofa
Opið og bjart eldhús sem er samliggjandi stofunni. Frá stofu er útgengt á stórar svalir með fallegu útsýni.
Svefnherbergi
Þrjú rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfum, fataskápum í öllum herbergjum og rúllugardínum.
Baðherbergi og þvottaherbergi
Baðherbergi með walk-in sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Leiguverð og kostnaður
• Leiguverð: 405.000 kr. á mánuði (tengt vísitölu)
• Innifalið: Hiti og rekstur sameignar
• Leigutaki greiðir: Rafmagn samkvæmt mæli
Nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Ívera í síma 517-3440 eða á
ivera@ivera.is.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati, sakavottorði og staðfestingu á launum.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
4 Herbergi
3 Svefnherbergi
1 Badherbergi
112,1 Fermetrar
Íbúðanúmer:108