Vefarastræti 24-26
mosfellsbae
Laus til leigu björt og glæsileg 2-3 herbergja íbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi.
Velkomin inn í fallegt og sjarmerandi 69,6 fm heimili að Vefarastræti 24-26, Helgafellslandinu, Mosfellsbæ. Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi annað mjög rúmgott með góðu skápaplássi, hitt 5fm herbergi með engu skápum, eldhús samliggjandi stofu með útgengi út á stórar svalir með fallegu útsýni. Baðherbergið er rúmgott með sturtu, upphengdu klósetti og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Einnig er merkt stæði í bílakjallara sem fylgir íbúðinni ásamt 6,6 fermetra geymslu í sameign.
Hverfið
Helgafellslandið býður uppá barnvænt umhverfi þar sem stutt er í útivistina. Bein gönguleið er í Helgafellsskóla fyrir ofan húsið og því stutt að fara þar sem er að finna grunnskóla og leikskóla fyrir börnin. Mosfellsbærinn er glæsilegt bæjarfélag þar sem íbúar eru gjarnan afar hamingjusamir. Í Helgafellslandinu er auðvelt að hafa heimilislegt.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 311.000 kr á mánuði og er tengd vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
2 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
69,6 Fermetrar
Íbúðanúmer:304