Valhallarbraut 1222
reykjanesbae
Notaleg þriggja herbergja íbúð með fallegu eldhúsi laus til leigu í desember.
Velkomin inn í vel skipulagt og notalegt 105,9 fm heimili að Valhallarbraut 1222, Ásbrú, Reykjanesbæ.
Hentar þeim sem elska að búa í rólegu umhverfi með nóg pláss. Íbúðin er nálægt leik,- og grunnskóla og allri helstu þjónustu.
Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi með fataskápum, rúmgott eldhús með miklu skápaplássi, stórri stofu með útgengi út á svalir og rúmgott baðherbergi með baðkari, einnig er geymsla/þvottaherbergi í íbúðinni.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 289.000 kr á mánuði og er tengd vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
105,9 Fermetrar
Íbúðanúmer:2B