Valhallarbraut 1234
reykjanesbae
Björt og falleg tveggja herbergja íbúð laus strax til leigu!
Velkomin í bjarta og fallega 44,2 m² tveggja herbergja íbúð við Valhallarbraut 1234 á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Íbúðin er vel skipulögð og hentar einstaklega vel fyrir einstakling eða par. Þar er hátt til lofts og nýjar innréttingar og gólfefni sem gefa íbúðinni snyrtilegt og aðlaðandi yfirbragð. Hún er staðsett í rólegu og notalegu hverfi á Ásbrú.
Nánari lýsing
Alrými og eldhús: Gengið er inn í opið og bjart alrými þar sem eldhús og stofa mynda notalega heild. Í eldhúsinu er innrétting með ísskáp. Á ganginum er stór og rúmgóður fataskápur sem veitir gott geymslupláss.
Svefnherbergi: Íbúðin er með einu björtu og rúmgóðu svefnherbergi með glugga.
Baðherbergi: Baðherbergið er með sturtu, rúmgóðri innréttingu og tengi fyrir þvottavél. Dúkur er á gólfi.
Leiguverð og kostnaðurr
Leiguverð: 237.000 kr. á mánuði, verðtryggt samkvæmt vísitölu.
Innifalið í leigu: Hiti og rekstur sameignar.
Rafmagn: Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Umsókn þarf að fylgja lánshæfismat og sakavottorð.
Leigutaki þarf að leggja fram tryggingu sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að leggja trygginguna inn á reikning, leggja fram bankaábyrgð frá viðskiptabanka eða nýta sér þjónustu Leiguskjóls.
Kostir þess að leigja hjá Íveru
Ívera er eitt af leiðandi leigufélögum landsins. Við rekum íbúðir til langs tíma, svo þú getur treyst á öruggt heimili til framtíðar.
• Viðhald og þjónusta innifalin
• Persónuleg og skjót þjónusta
• Traustur langtímaleigusali
Upplýsingar
2 Herbergi
1 Svefnherbergi
1 Badherbergi
44,2 Fermetrar
Íbúðanúmer:01-205