Bogabraut 960
reykjanesbae
Sjarmerandi 2 herbergja íbúð með fallega birtu til leigu
Velkomin inn í nýuppgert og vel skipulagt 57,5 fermetra heimili á Bogabrautinni, Ásbrú. Hér er auðvelt að hafa heimilislegt, í Bogabrautinni býrðu nálægt fallegum útivistarsvæðum og í íbúðinni eru suðursvalir sem bjóða uppá rólegar sumarstundir.
Íbúðin er með gluggum á báðum hliðum hússins og hefur að geyma eitt svefnherbergi, opna lausn á eldhúsi ig stofu. Baðherbergið hefur sturtu með gleri og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hverfið
Ásbrúarhverfið er ört vaxandi hverfi með mikla sögu í Reykjanesbæ. Mikil þjónusta er til taks, til að nefna eru Fitjar í göngufæri þar sem er að finna frábæra Bónus verslun, veitingastaði og bakarí. Einnig er að finna líkamsrækt á Ásbrú. Leikskóli nálægt íbúðinni ásamt leikvöllum og útivistarsvæðum fyrir börnin.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 225.000 kr á mánuði og er tengd vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
2 Herbergi
1 Svefnherbergi
1 Badherbergi
57,5 Fermetrar
Íbúðanúmer:302