Snorrabraut 54C

Reykjavíkurborg / Reykjavík

Mynd 1
Skoða myndir
  • Baðherbergi
  • Baðherbergi
  • Stofa
  • Herbergi
Mynd 1
Baðherbergi
Baðherbergi
Stofa
Herbergi
Herbergi
Baðherbergi
Stofa
Herbergi
Herbergi
Stofa
Baðherbergi
Skoða myndir

Stórglæsileg og nútímaleg íbúð til leigu að Snorrabraut 54C í Reykjavík!

Velkomin í glæsilega fjögurra herbergja 102,1 fm íbúð að Snorrabraut. Við kynnum nýlega íbúð á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur. Í næsta nágrenni við bygginguna er að finna bæði fjölbreytta afþreyingu og alla helstu þjónustu, þar á meðal Sundhöll Reykjavíkur, Laugarveginn og úrval veitingastaða og kaffihúsa. Allt er innan þægilegs göngufæris. Staðsetningin er fullkomin fyrir þá sem vilja njóta menningarlífsins og þess fjölbreytta mannlífs sem Reykjavík hefur upp á að bjóða.

Nánari lýsing

Við inngang íbúðarinnar eru fataskápar, með góðu skápaplássi, þar sem hægt er að hengja af sér. Íbúðin samanstendur af þremur svefnherbergjum; tvö þeirra eru með fataskápum og hið þriðja hefur útgengt á svalir. Stofa og eldhús mynda bjart og opið alrými með glæsilegu og nútímalegu yfirbragði. Úr stofurými er útgengt á tvær svalir í sitthvora áttina. Eldhúsið er með vönduðum innréttingum og mjög góðu skápaplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgir íbúð.

Baðherbergið í íbúðinni er bæði rúmgott og fallega innréttað með stílhreinum gylltum smáatriðum. Sér þvottaherbergi er í íbúð, þar er aðstaða fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Íbúðin er með gardínum í öllum gluggum. Geymsla 3,6 fm að stærð, fylgir íbúðinni og er í kjallara.

Bílastæði í bílakjallara fylgir ekki með, en þar er hægt að leigja stæði sérstaklega.

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 478.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.

Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.

Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakarvottorði.

Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.

Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.

Kostir þess að leigja hjá Íveru

Ívera er eitt af leiðandi leigufélögum landsins. Við rekum íbúðir til langs tíma, svo þú getur treyst á öruggt heimili til framtíðar.

• Viðhald og þjónusta innifalin

• Persónuleg og skjót þjónusta

• Traustur langtímaleigusali

Upplýsingar

Laus:

4 Herbergi

3 Svefnherbergi

1 Badherbergi

102,1 Fermetrar

Íbúðanúmer:113

Ívera @ 2026 Allur réttur áskilinn