Hlíðarfótur 17
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Stórglæsileg og rúmgóð þriggja herbergja íbúð á Hlíðarenda
Laus björt og falleg íbúð að Hlíðarfæti 17, Hlíðarenda, Reykjavík. Velkomin inn í rúmgott og nýlegt 103 fm heimili. Íbúðin hentar þeim vel sem vilja búa nálægt miðbænum en þó einnig nálægt útivistarsvæðum og fallegu útsýni. Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi með fataskápum, rúmgott eldhús með fallegri eyju sem snýr út að alrýminu, eldhúsinu fylgir ísskápur og uppþvottavél, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt svölum með fallegu útsýni. Íbúðin er á 3ju hæð í lyftuhúsi. Eitt stæði fylgir íbúð í bílakjallara.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 399.000 kr á mánuði og er tengd vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Kostir þess að leigja hjá Íveru
Ívera er eitt af leiðandi leigufélögum landsins. Við rekum íbúðir til langs tíma, svo þú getur treyst á öruggt heimili til framtíðar.
• Viðhald og þjónusta innifalin
• Persónuleg og skjót þjónusta
• Traustur langtímaleigusali
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
103,1 Fermetrar
Íbúðanúmer:301