Hlíðarfótur 15
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Til leigu falleg 4ra herbergja íbúð að Hlíðarfæti 15, Hlíðarenda, Reykjavík.
Íbúðin er fjögurra herbergja 104,3 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og svalir. Íbúðin er parketlögð með fallegu harðparketi, vandaðar og fallegar innréttingar á eldhúsi og baðherbergi. Íbúðin er björt og falleg með frábæru útsýni yfir flugbrautina.
Íbúðinni fylgja gardínur og ljós í öllum rýmum, ásamt ísskáp og uppþvottavél. Íbúðin er á annarri hæð í lyftuhúsi. Stutt er í alla þjónustu, miðborgina og menntastofnanir. Allar frekari upplýsingar veitir starfsfólk Íveru í síma 517-3440 eða á ivera@ivera.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í rúmgott anddyri, þar er stór fataskápur.
Eldhús/stofa: Fallegt opið eldhús. Eldhús er samliggjandi stofu og borðstofu. Úr stofu er útgengt á svalir með frábæru útsýni yfir flugbrautina. Í eldhúsinu er eyja og háfur.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi. Sturta og tengi fyrir þvottavél. Flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll parketlögð með fataskápum.
Geymsla og bílastæði: 11,6 fm geymsla í sameign hússins og bílastæði í bílakjallara.
Leiguverð: 410.000 kr. Innifalið í leiguverði er hiti, þrif á sameign og stæði í bílakjallara.
Gæludýr eru ekki leyfð í íbúðinni
Upplýsingar
4 Herbergi
3 Svefnherbergi
1 Badherbergi
104,3 Fermetrar
Íbúðanúmer:201