Snorrabraut 54C

Reykjavíkurborg / Reykjavík

Stórglæsileg og nútímaleg íbúð til leigu í nýbyggingu að Snorrabraut 54C í Reykjavík!

Velkomin í glæsilega fjögurra herbergja 109,1 fm íbúð að Snorrabraut. Við kynnum nýbyggingu á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur. Í næsta nágrenni við bygginguna er að finna bæði fjölbreytta afþreyingu og alla helstu þjónustu, þar á meðal Sundhöll Reykjavíkur, Laugarveginn og úrval veitingastaða og kaffihúsa. Allt er innan þægilegs göngufæris. Staðsetningin er fullkomin fyrir þá sem vilja njóta menningarlífsins og þess fjölbreytta mannlífs sem Reykjavík hefur upp á að bjóða.

Nánari lýsing

Við inngang íbúðarinnar eru fataskápar, með góðu skápaplássi, þar sem hægt er að hengja af sér. Íbúðin samanstendur af þremur svefnherbergjum; tvö þeirra eru með fataskápum og hið þriðja hefur útgengt á svalir. Stærsta svefnherbergið er með beinum aðgangi að baðherbergi. Stofa og eldhús mynda bjart og opið alrými með glæsilegu og nútímalegu yfirbragði. Úr stofurými er útgengt á tvær svalir í sitthvora áttina. Aðrar svalirnar horfa út á Snorrabrautina, en hinar svalirnar eru 40 fm að stærð með glæsilegu útsýni á Hallgrímskirkju. Eldhúsið er með vönduðum innréttingum og mjög góðu skápaplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgir íbúð.

Baðherbergið í íbúðinni er bæði rúmgott og fallega innréttað með stílhreinum gylltum smáatriðum. Þvottahús er innan baðherbergis og þar er aðstaða fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Íbúðin er með gardínum í öllum gluggum. Geymsla, 8,1 fm að stærð, fylgir íbúðinni.

Bílastæði í bílakjallara fylgir ekki með, en þar er hægt að leigja stæði sérstaklega.

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 445.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.

Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.

Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakarvottorði.

Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.

Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.

Hér er hægt að sjá 3D sýningu á íbúðinni! :

Upplýsingar

Laus:

4 Herbergi

3 Svefnherbergi

1 Badherbergi

109,1 Fermetrar

Íbúðanúmer:309

Ívera @ 2024 Allur réttur áskilinn