Hraunbær 107
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Glæsileg stúdíó íbúð laus til leigu í Hraunbæ 107!
Fallegt og sjarmerandi 33,2 fm heimili á jarðhæð að Hraunbæ 107, Reykjavík.
Íbúðin hentar einstaklingi eða pari vel, gengið er inn í íbúðina og þar er ný eldhúsinnrétting, rúmgott baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og svefn/stofurými.
Stutt er í alla helstu þjónustu.
Leiguverð er 217.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Hiti og hússjóður er innifalinn í leigu en rafmagn greiðist af leigutaka.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Allar frekari upplýsingar veitir starfsfólk Íveru í síma 517-3440 eða á ivera@ivera.is
Hlökkum til að heyra í þér!
Upplýsingar
1 Herbergi
1 Svefnherbergi
1 Badherbergi
33,2 Fermetrar
Íbúðanúmer:102