Hverfisgata 44
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Frábær stúdíó íbúð í miðborginni laus til leigu í maí
Þessi nútímalega 43,9 fm íbúð á Hverfisgötu er laus til leigu. Íbúðin er á þriðju hæð með menningarlíf miðborgarinnar í bakgarðinum. Strætó stoppar í aðeins einnar mínútu göngufjarlægð fyrir utan Bíó Paradís. Tilvalið fyrir einstaklinga eða pör á öllum aldri.
Myndir eru úr sambærilegri íbúð í húsinu.
Eignin
Innan íbúðar:
Gengið er inn í íbúðina með fataskáp á hægri hönd og baðherbergi til vinstri. Opið eldhús er í íbúðinni og stór gluggi í stofu. Svefnkrókurinn er staðsettur vinstra megin í íbúðinni, frá svefnkróki er hægt að ganga út á svalir.
Ytri rými:
Geymsla í kjallara fylgir íbúð sem er 2,8 fm að stærð. Sameiginlegt þvottahús er í húsinu þar sem íbúar hafa aðgengi að þvottavél, þurrkara og þurrkunarrými.
Innréttingar
Gólfefni: Parket með gólfhita.
Eldhús: Ískápur ásamt bakaraofni, helluborði og eldhúsviftu.
Baðherbergi: Flísar á gólfum með gólfhita. Flísar á veggjum.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 262.000 kr á mánuði og er tengd vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
1 Herbergi
1 Svefnherbergi
1 Badherbergi
43,9 Fermetrar
Íbúðanúmer:306