Baldursgata 32
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Björt og notaleg 2ja herbergja íbúð í hjarta Reykjavíkur
Hér getur þú búið miðsvæðis í fallegri 45,6 fm íbúð á annarri hæð að Baldursgötu 32. Allt sem þú þarft í daglegu lífi er í göngufæri, hvort sem það er verslun, þjónusta eða kaffihús.
Nánari lýsing
Íbúðin er björt og vel skipulögð með stofu, eldhúsi, svefnherbergi og baðherbergi. Frönsku svalirnar hleypa góðri birtu inn og gera íbúðina enn hlýlegri. Íbúðinni fylgir sérafnotareitur og í sameign er sameiginleg þvottaaðstaða
Gæludýr eru velkomin í húsið með fyrirvara um umgengnisreglur.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 296.000 kr á mánuði og er tengd vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Kostir þess að leigja hjá Íveru
Ívera er eitt af leiðandi leigufélögum landsins. Við rekum íbúðir til langs tíma, svo þú getur treyst á öruggt heimili til framtíðar.
• Viðhald og þjónusta innifalin
• Persónuleg og skjót þjónusta
• Traustur langtímaleigusali
Upplýsingar
2 Herbergi
1 Svefnherbergi
1 Badherbergi
45,6 Fermetrar
Íbúðanúmer:203