Snorrabraut 54C

Reykjavíkurborg / Reykjavík

Mynd 1
Skoða myndir
  • Herbergi
  • Baðherbergi
  • Herbergi
  • Baðherbergi
Mynd 1
Herbergi
Baðherbergi
Herbergi
Baðherbergi
Herbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Herbergi
Herbergi
Skoða myndir

Glæsileg íbúð til leigu í nýbyggingu að Snorrabraut 54C í Reykjavík

Velkomin í glæsilega þriggja herbergja 51,8 fm íbúð að Snorrabraut. Við kynnum nýbyggingu á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur. Í næsta nágrenni við bygginguna er að finna bæði fjölbreytta afþreyingu og alla helstu þjónustu, þar á meðal Sundhöll Reykjavíkur, Laugarveginn og úrval veitingastaða og kaffihúsa. Allt er innan þægilegs göngufæris. Staðsetningin er fullkomin fyrir þá sem vilja njóta menningarlífsins og þess fjölbreytta mannlífs sem Reykjavík hefur upp á að bjóða.

Nánari lýsing

Við inngang íbúðarinnar er fataskápur þar sem hægt er að hengja af sér. Íbúðin er með tveimur fallegum svefnherbergjum. Stofa og eldhús mynda bjart og opið alrými með glæsilegu og nútímalegu yfirbragði. Úr stofurými er útgengt á verönd þar sem hægt er að njóta útiveru. Eldhúsið er með nýtískulegum innréttingum og góðu skápaplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgir íbúð. Baðherbergið skartar fallegum innréttingum og býður upp á aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara

Íbúðin er með gardínum í öllum gluggum.

Geymsla fylgir íbúðinni.

Bílastæði í bílakjallara fylgir ekki íbúðinni, en þar er hægt er að leigja stæði sérstaklega, ef það eru laus stæði.

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 330.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.

Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.

Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakarvottorði.

Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.

Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.

Upplýsingar

Laus:

3 Herbergi

2 Svefnherbergi

1 Badherbergi

51,8 Fermetrar

Íbúðanúmer:209

Ívera @ 2026 Allur réttur áskilinn