Jöfursbás 3C
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Glæsileg 2ja herbergja íbúð í nýbyggingu við Gufunes - laus til leigu!
Íbúðin er 56,8 fm tveggja herbergja íbúð á fjórðu hæð í glænýrri byggingu við Jöfursbás 3C. Þar af er 7,3 fm geymsla.
Gufunesið er einstakt hverfi við strandlengjuna í mikilli uppbyggingu þar sem falleg náttúra og spennandi mannlíf mætast. Svæðið býður upp á fjölbreytta möguleika til útivistar, meðal annars göngu- og hjólaleiðir meðfram sjónum, kajak, sjósund, fargufu og jóga. Íbúðirnar eru vel hannaðar með áherslu á birtu, fallegt útsýni og græn sameiginleg svæði, sannkölluð náttúruparadís í borginn
Nánari lýsing
Gengið er inn í forstofu með góðu skápaplássi. Á hægri hönd er stílhreint baðherbergi með rúmgóðri sturtu, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þegar gengið er áfram eftir ganginum tekur við bjart og opið alrými þar sem eldhús og stofa mynda fallega heild. Úr alrýminu er gengið út á svalir. Svefnherbergið er með góðu skápaplássi.
Ísskápur, uppþvottarvél og gardínur fylgja íbúð.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 320.000 kr. á mánuði og er verðtryggt samkvæmt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti og rekstur sameignar.
Leigutaki greiðir rafmagn samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn ásamt lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð skal nema þriggja mánaða leigu.
Upplýsingar
2 Herbergi
1 Svefnherbergi
1 Badherbergi
56,8 Fermetrar
Íbúðanúmer:407