Snorrabraut 54B
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Glæsileg íbúð til leigu í nýbyggingu að Snorrabraut 54B í Reykjavík
Velkomin í glæsilega tveggja herbergja 57,7 fm íbúð að Snorrabraut. Við kynnum nýbyggingu á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur. Í næsta nágrenni við bygginguna er að finna bæði fjölbreytta afþreyingu og alla helstu þjónustu, þar á meðal Sundhöll Reykjavíkur, Laugarveginn og úrval veitingastaða og kaffihúsa. Allt er innan þægilegs göngufæris. Staðsetningin er fullkomin fyrir þá sem vilja njóta menningarlífsins og þess fjölbreytta mannlífs sem Reykjavík hefur upp á að bjóða.
Nánari lýsing
Við inngang íbúðarinnar er fataskápur þar sem hægt er að hengja af sér. Íbúðin er með einu rúmgóðu svefnherbergi sem er búið fataskáp. Stofa og eldhús mynda bjart og opið alrými. Eldhúsið er með nýtískulegum innréttingum og góðu skápaplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgir íbúð. Úr eldhúsi er útgengt á svalir þar sem hægt er að njóta útiveru. Baðherbergið skartar fallegum innréttingum og býður upp á aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Íbúðin er með gardínum í öllum gluggum. Geymsla 3 fm að stærð, fylgir íbúðinni.
Bílastæði í bílakjallara fylgir ekki íbúðinni, en þar er hægt er að leigja stæði sérstaklega.
Hér má sjá 3D sýningu af íbúðinni:
Íbúðin er laus í ágúst eftir samkomulagi.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 320.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakarvottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
2 Herbergi
1 Svefnherbergi
1 Badherbergi
57,7 Fermetrar
Íbúðanúmer:206