Dalsmúli 1

Reykjavíkurborg / Reykjavík

Mynd 1
Skoða myndir
  • Baðherbergi
  • Útlit
  • Útlit
  • Útlit
Mynd 1
Baðherbergi
Útlit
Útlit
Útlit
Útlit
Útlit
Skoða myndir

Glæsileg og nútímaleg íbúð til leigu í nýbyggingu að Dalsmúla 1 í Reykjavík

Velkomin í glæsilega tveggja herbergja 59,3 fm íbúð að Dalsmúla 1 á frábærum stað í Reykjavík. Íbúðin er á sjöttu hæð í nýbyggingu og skartar fallegum og nútímalegum innréttingum og vönduðu efnisvali. Íbúðin er staðsett á afar skemmtilegu og gróðursælu svæði í Reykjavík, þar sem stutt er í eitt helsta útivistarsvæði borgarinnar. Með Laugardalinn, Laugardalslaug og aðrar afþreyingar í næsta nágrenni, er þetta frábært kostur fyrir alla sem vilja búa miðsvæðis með náttúru og afþreyingu við hendina.

Nánari lýsing

Aukin lofthæð er í íbúðinni og við innganginn er forstofa með fataskáp. Allar hurðir eru fallega svartar sem gefa heimilinu stílhreint yfirbragð. Eitt herbergi er í íbúðinni og það er búið fataskáp. Stofa og eldhús eru í björtu og opnu alrými. Eldhúsið býður upp á gott skápapláss og innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja íbúð. Úr stofurými er gengið út á notalegar svalir, tilvaldar til að njóta útiveru. Baðherbergi er með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla, 4,8 fm að stærð, fylgir íbúðinni.

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 315.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.

Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.

Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakarvottorði.

Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.

Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.

Upplýsingar

Laus:

2 Herbergi

1 Svefnherbergi

1 Badherbergi

59,3 Fermetrar

Íbúðanúmer:601

Ívera @ 2024 Allur réttur áskilinn