Snorrabraut 54C

Reykjavíkurborg / Reykjavík

Mynd 1
Skoða myndir
  • Mynd 2
  • Mynd 2
  • Mynd 2
  • Herbergi
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 2
Mynd 2
Herbergi
Baðherbergi
Stofa
Herbergi
Stofa
Stofa
Skoða myndir

Glæsileg íbúð til leigu í nýbyggingu að Snorrabraut 54C í Reykjavík

Velkomin í glæsilega þriggja herbergja 63,8 fm íbúð að Snorrabraut. Við kynnum nýbyggingu á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur. Í næsta nágrenni við bygginguna er að finna bæði fjölbreytta afþreyingu og alla helstu þjónustu, þar á meðal Sundhöll Reykjavíkur, Laugarveginn og úrval veitingastaða og kaffihúsa. Allt er innan þægilegs göngufæris. Staðsetningin er fullkomin fyrir þá sem vilja njóta menningarlífsins og þess fjölbreytta mannlífs sem Reykjavík hefur upp á að bjóða.

Nánari lýsing

Við inngang íbúðarinnar er fataskápur þar sem hægt er að hengja af sér. Íbúðin er með tveimur fallegum svefnherbergjum. Stofa og eldhús mynda bjart og opið alrými með glæsilegu og nútímalegu yfirbragði. Eldhúsið er með nýtískulegum innréttingum og góðu skápaplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgir íbúð. Baðherbergið skartar fallegum innréttingum og býður upp á aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.

Íbúðin er með gardínum í öllum gluggum.

Geymsla fylgir íbúðinni.

Bílastæði í bílakjallara fylgir ekki íbúðinni, en þar er hægt er að leigja stæði sérstaklega.

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 330.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.

Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.

Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakarvottorði.

Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.

Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.

Upplýsingar

Laus:

3 Herbergi

2 Svefnherbergi

1 Badherbergi

63,8 Fermetrar

Íbúðanúmer:110

Ívera @ 2024 Allur réttur áskilinn