Eddufell 8
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Velkomin í notalegt og hagnýtt heimili í Eddufelli 8
Til leigu notaleg 2 herbergja íbúð í Eddufelli 8. Íbúðin er 64,9 fermetrar á þriðju hæð í lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í anddyri, svefnherbergi, baðherbergi, opið eldhús og stofa með útgengi út á svalir.
Nánari lýsing
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með fatahengi. Forstofan er flísalögð.
Eldhús/stofa: Fallegt og opið eldhús samliggjandi stofunni. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu og fylgja því með. Falleg og björt stofa þar sem útgengt er á stórar svalir með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt með sturtu og upphengdu salerni. Rúmgóð baðinnrétting og speglaskápur. Inn á baðherbergi er innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi: Í eigninni er eitt svefnherbergi, parketlagt með fataskáp.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 312.000 kr á mánuði og er tengd vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign, rafmagnsnotkun er greidd af leigutaka.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Kostir þess að leigja hjá Íveru
Ívera er eitt af leiðandi leigufélögum landsins. Við rekum íbúðir til langs tíma, svo þú getur treyst á öruggt heimili til framtíðar.
• Viðhald og þjónusta innifalin
• Persónuleg og skjót þjónusta
• Traustur langtímaleigusali
Upplýsingar
2 Herbergi
1 Svefnherbergi
1 Badherbergi
64,9 Fermetrar
Íbúðanúmer:302