Snorrabraut 54C
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Glæsileg íbúð til leigu í nýbyggingu að Snorrabraut 54C í Reykjavík
Velkomin í glæsilega þriggja herbergja 67,9 fm íbúð að Snorrabraut. Við kynnum nýbyggingu á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur. Í næsta nágrenni við bygginguna er að finna bæði fjölbreytta afþreyingu og alla helstu þjónustu, þar á meðal Sundhöll Reykjavíkur, Laugarveginn og úrval veitingastaða og kaffihúsa. Allt er innan þægilegs göngufæris. Staðsetningin er fullkomin fyrir þá sem vilja njóta menningarlífsins og þess fjölbreytta mannlífs sem Reykjavík hefur upp á að bjóða.
Nánari lýsing
Við inngang íbúðarinnar er fataskápur þar sem hægt er að hengja af sér. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum sem eru bæði búin fataskápum. Stofa og eldhús mynda bjart og opið alrými með glæsilegu og nútímalegu yfirbragði. Eldhúsið er með nýtískulegum innréttingum og góðu skápaplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgir íbúð. Baðherbergið er rúmgott og skartar fallegum innréttingum.
Þvottahús er innan íbúðar og þar er aðstaða fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Íbúðin er með gardínum í öllum gluggum. Geymsla 8,8 fm að stærð, fylgir íbúðinni. Úr stofurými er útgengt á verönd þar sem hægt er að njóta útiveru.
Bílastæði í bílakjallara fylgir ekki íbúðinni, en þar er hægt er að leigja stæði sérstaklega.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 330.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakarvottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Hlekkur á 3D sýning
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
67,9 Fermetrar
Íbúðanúmer:114