Dalsmúli 3
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Glæsileg og nútímaleg íbúð til leigu í nýbyggingu að Dalsmúla 3 í Reykjavík
Velkomin í glæsilega þriggja herbergja 70,2 fm íbúð að Dalsmúla 3 á frábærum stað í Reykjavík. Íbúðin er á fjórðu hæð í nýbyggingu og skartar fallegum og nútímalegum innréttingum og vönduðu efnisvali. Íbúðin er staðsett á afar skemmtilegu og gróðursælu svæði í Reykjavík, þar sem stutt er í eitt helsta útivistarsvæði borgarinnar. Með Laugardalinn, Laugardalslaug og aðrar afþreyingar í næsta nágrenni, er þetta frábært kostur fyrir alla sem vilja búa miðsvæðis með náttúru og afþreyingu við hendina.
Nánari lýsing
Við inngang íbúðarinnar eru fataskápar þar sem hægt er að hengja af sér. Þú gengur inn í eldhús og stofu sem eru í björtu og fallegu opnu alrými. Eldhúsið býður upp á gott skápapláss og innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja íbúð. Úr stofurými er gengið út á notalegar svalir, tilvaldar til að njóta útiveru. Allar hurðir eru í fallega dökkum tón sem gefur heimilinu stílhreint yfirbragð. Tvö herbergi er í íbúðinni, bæði með fataskápum. Baðherbergi er með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla, 6 fm að stærð, fylgir íbúðinni.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 325.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakarvottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
70,2 Fermetrar
Íbúðanúmer:407