Hlíðarfótur 17
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Glæsileg tveggja herbergja íbúð laus til leigu að Hlíðarfæti 17, Hlíðarenda, Reykjavík.
Íbúðin er 72,3 fm og er tveggja herbergja á annarri hæð. Íbúðin skiptist í forstofu, eitt svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og svalir. Íbúðin er parketlögð með fallegu harðparketi, vandaðar og fallegar innréttingar á eldhúsi og baðherbergi.
Íbúðinni fylgja gardínur og ljós í öllum herbergjum, ísskápur og uppþvottavél, þvottavél og þurrkari. Lyfta er í húsinu og stutt er í alla þjónustu og menntastofnanir. Allar frekari upplýsingar veitir starfsfólk Íveru í síma 517-3440 eða á ivera@ivera.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í rúmgóða forstofu með fataskáp.
Eldhús/stofa: Eldhúsið og stofan er eitt opið bjart rými. Útgengt er á svalir úr stofunni, svalir snúa í átt að Perlunni. Eldhúsið er með fallegum og vönduðum innréttingum og góðu skápaplássi. Ísskápur og uppþvottavél fylgir með.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi. Sturta og tengi fyrir þvottavél. Flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum. Þvottavél og þurrkari fylgir með.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með stórum fataskáp.
Geymsla: 6,9 fm geymsla í sameign hússins
Leiguverð: 321.000 kr á mánuði. Innifalið í leiguverði er hiti, þrif á sameign og stæði í bílakjallara.
Upplýsingar
2 Herbergi
1 Svefnherbergi
1 Badherbergi
72,3 Fermetrar
Íbúðanúmer:202