Jöfursbás 3C
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Notaleg 3ja herbergja íbúð í glænýju húsi við sjóinn í Gufunesi
Velkomin í notalegt og vel skipulagt 76,4 fermetra heimili á þriðju hæð í glænýju húsi við Jöfursbás 3C í Gufunesi.
Fyrir þig sem dreymir um nýtt heimili í tengingu við náttúruna, með göngu- og hjólaleiðir meðfram sjónum rétt við dyrnar.
Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi með fataskápum og bjart, opið alrými þar sem eldhús og stofa mynda fallega heild. Úr alrýminu er gengið út á svalir.
Við Jöfursbás býrðu í hverfi í mikilli uppbyggingu, þar sem náttúra og spennandi mannlíf mætast. Hér er stutt í kajak, sjósund, fargufu og jóga, og græn sameiginleg svæði eru við húsið.
Velkomin heim!
Nánari lýsing
Gengið er inn í forstofu með fataskáp. Á vinstri hönd er hjónaherbergi með rúmgóðum fataskápum og við hlið þess annað svefnherbergi, einnig með fataskáp. Á móti er baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Innar tekur við bjart og opið alrými með eldhúsi og stofu, og þaðan er gengið út á svalir. 9 fm geymsla er innifalin í fermetratölunni.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 365.000. kr. á mánuði og er verðtryggt samkvæmt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti og rekstur sameignar.
Leigutaki greiðir rafmagn samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn ásamt lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð skal nema þriggja mánaða leigu.
Kostir þess að leigja hjá Íveru
Ívera er eitt af leiðandi leigufélögum landsins. Við rekum íbúðir til langs tíma, svo þú getur treyst á öruggt heimili til framtíðar.
• Viðhald og þjónusta innifalin
• Persónuleg og skjót þjónusta
• Traustur langtímaleigusali
Hér má sjá 3D sýningu af íbúð:
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
76,4 Fermetrar
Íbúðanúmer:309