Þórðarsveigur 34-36
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Laus til leigu, glæsileg þriggja herbergja íbúð þar sem gæludýr eru velkomin
Þér sem líkar að búa í hæfilegri fjarlægð frá miðborginni og vera nálægt allri helstu þjónustu mun líða vel hér. Hér er auðvelt að hafa heimilislegt. Margar gönguleiðir eru í kringum íbúðina og því tilvalið að skreppa í göngutúra við tækifæri. Í Grafarholtinu hefur þú allt til taks til að hafa það notalegt, einnig er frábær þjónusta í hverfinu.
Eignin
Eldhús og stofa eru í opnu rými með útgengi úr stofu á verönd.
Baðherbergi með innangengri sturtu, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum.
Innréttingar
Gólfefni: Parket og flísar í forstofu
Eldhús: Tengi fyrir ísskáp og uppþvottavél, bakaraofn, helluborð og eldhúsvifta fylgir íbúðinni.
Baðherbergi: Flísar á gólfum og veggjum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla fylgir í kjallara.
Gæludýr
Þórðarsveigur er gæludýravæn eign, leyfilegt er að vera með eitt gæludýr í íbúðinni svo lengi sem umgengnisreglum er fylgt.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 322.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti og rekstur á sameign.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
77 Fermetrar
Íbúðanúmer:502